Minnsta leturgerð
Miðstærð leturgerðar
Stærsta leturgerð
Hafa samband
Forsíða
Prenta
Leita

 

Handlækningadeild 

 

 

Gunnar
yfirlæknir
Ásbjörg deildarstjóri
Yfirlæknir Gunnar Herbertsson
  

Deildarstjóri Ásbjörg Magnúsdóttir

  

 

 

 

 

 

 

 

 

Hugað að sjúklingi eftir aðgerð

Handlækningadeild er á annarri hæð í aðalbyggingu spítalans að Suðurgötu 41.  Á deildinni eru 21 sjúkrarúm auk þess eru þrjú rúm á VÖKNUNAR-herbergi. Allir sjúklingar eru á vöknun til eftirlits eftir svæfingu og aðgerð .


Nálægð við skurðstofur er mikil þar sem þær eru á sömu hæð og deildin.  Augnaðgerðir eru gerðar á skurðstofu  göngudeildar sem er staðsett í húsinu að Suðurgötu 44,  gegnt aðalbyggingunni. 

 

Handlækningadeildin er opin frá 7.30 á mánudögum til kl 16 á föstu-dögum eða laugardögum, eftir aðgerðum.  Aðgerðir sem þurfa lengri legutíma eru gerðar í byrjun vikunnar.   

 

Starfsvið 

Starfsemi deildarinnar mótast  af þeim skurðaðgerðum sem unnar eru.  Spítalinn hefur á að skipa afar færum sérfræðingum og eru þeir listaðir eftir sérsviðum,  í rammanum hér að neðan:

 

 
Kvensjúkdómar: Benedikt Ó. Sveinsson
Ólafur Hákonsson
Almennar skurðlækningar

Höskuldur Kristvinsson

Sigurður Ó. Blöndal

Bæklunarskurðlækningar

Brynjólfur Jónsson

Gauti Laxdal

Ríkarður Sigfússon      
Stefán Carlsson

Örnólfur Valdimarsson 

Háls-, nef- og eyrnalækningar  Hannes Hjartarson
Svæfingalækningar

Sveinn Geir Einarsson

Arnaldur Valgarðsson

María Sverrisdóttir

Ragnar Ármannsson                                  

Augnlækningar

Björn Már Ólafsson

Jens Þórisson

Vésteinn Jónsson

Lýtalækningar

Guðmundur M. Stefánsson

Jens Kjartansson

Ólafur Einarsson

Rafn Á. Ragnarsson

Þórdís Kjartansdóttir

 

  

Hjúkrun 

Hugmyndafræði hjúkrunar á St. Jósefsspítala er umhyggja og á hún að endurspeglast í þeirri hjúkrun sem veitt er á handlækningadeildinni.  Meðan á sjúkrahúsdvöl stendur eru það hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk í aðhlynningu sem hjúkra sjúklingum. Skipulagsform hjúkrunar er þannig að ákveðinn hjúkrunarfræðingur og sjúkraliði sinna ákveðnum sjúklingahópi og getur sjúklingur ávallt leitað til þeirra.

Dóra og Ása við aðhlynningu

 

Teymisvinna

Teymisvinna innan deildarinnar er mikil og er upplýsingaflæði milli lækna og hjúkrunarfræðinga mjög gott.  Deildarlæknir er starfandi frá kl 8-16 virka daga og er hann á bakvakt utan dagvinnutíma.  Símanúmer vakthafandi deildarlæknis er 520 1011. 
 

Almennar upplýsingar 

Innlögn á St. Jósefsspítala

 

Heimsóknir

Fastir heimsóknartímar eru alla daga frá kl 15-16 og kl 19-20 á kvöldin.

 

Verðmæti

Sjúklingum er ráðlagt að hafa sem minnst meðferðis af skartgripum eða öðrum verðmætum.  Hægt er að geyma verðmæti í læstri hirslu. Spítalinn tekur ekki ábyrgð á verðmætum sjúklinga.

 

Til afþreyingar

Á dagstofu eru dagblöð, bækur og tímarit sem heimilt er að taka á stofur.  Sjónvarpstæki er á dagstofu, einnig á deildin tvö lítil sjónvarpstæki sem hægt er að hafa á sjúkrastofum.  Útvarpstæki er við hvert rúm ásamt heyrnartæki.
 

Reykingar

Reykingar eru alls ekki leyfðar. Við viljum benda reykingafólki á að nota nikótíntyggjó, plástur eða annað sem hentar þegar það kemur til meðferðar eða dvalar á sjúkrahúsinu.  

 

Þagnarskylda

Aðgát skal höfð í nærveru sálar.  Starfsmenn St. Jósefsspítala eru bundnir þagnarskyldu og skulu gæta fyllstu þagmælsku um allt það sem þeir komast að í starfi sínu um heilsufar sjúklinga, ástand, sjúkdómsgreiningu, horfur og meðferð ásamt öðrum persónulegum upplýsingum.  Þagnarskyldan helst þótt starfsmenn láti af störfum. 

  

Tengingar við fræðslu um aðgerðir á spítalanum:

 

Kvensjúkdómalækningar:    Brottnám legs              

Legspeglun - legskaf

Þvaglekaaðgerð

Viðgerð á grindarbotni

Bæklunarlækningar:

Axlaraðgerð

Hálfliður í hné       

Hnéspeglun

Skekkja á stórutá

Almennar skurðlækningar: Gallaðgerð      

Kviðarholsspeglun

Kviðslitsaðgerð

Háls nef og eyrnalækningar: Hálskirtlataka
Lýtalækningar: Brjóstaminnkun
Augnlækningar: Drera-aðgerð 

 

 

 

Ráðleggingar um sjúkrafæði:    Vefsíður félagasamtaka í heilbrigðismálum:

Fituskert fæði 

Fljótandi fæði   

Kólestról-snautt fæði 

Fínt mauk

Létt fæði

Létt og fitusnautt fæði  

Mauk-fæði   

Kyngingarvandamál

Mjúkt fæði

Salt-skert fæði 

Tært fljótandi fæði

Bólgusjúkdómar í meltingarvegi

MS-sjúkdómur

Sorg og sorgarviðbrögð

Heilabilun

Krabbamein

Stómíusamtökin

Sykursýki

BeinverndFélag heilabilaðra og Alzheimersjúkra

 

Sjá fleiri tengingar undir fræðslu

 

              Með kveðju
              starfsfólk handlækningadeildar
              St. Jósefsspítala, Hafnarfirði

 

Til baka